
um mig
Ég er lærður bólstrari og textílhönnuður með menntun í húsgagnabólstrun, húsgagnasmíði og textílhönnun. Auk þess er ég leiðsögumaður með áherslu á gönguleiðsögn og hef landvarðarréttindi. Áhugi minn á handverki og handverkshefðum hefur fylgt mér frá unga aldri. Að loknu fimm ára námi í textílhönnun og myndlist starfaði ég um árabil við stjórnunarstörf hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands, Textílfélaginu og Textílsetrinu á Blönduósi, samhliða því að starfa sem textíl- og prjónahönnuður. Óslökkvandi áhugi á útivist hefur einnig leitt mig um landið sem leiðsögumann með ferðamannahópa. Þar hafa handverk, prjón og íslensk menningararfleifð oft orðið eðlilegur hluti af upplifun gesta. Með bakgrunn í handverki, handverkshefðum og myndlist sameina ég fagþekkingu, sköpunargleði og vandvirkni í húsgagnabólstrun og fjölbreyttri textílvinnu, þar sem virðing fyrir efnum, sögu og vönduðu handverki er höfð að leiðarljósi.