Textílhönnun uppsetning og viðgerðir.

Ég hef lengi haft áhuga á gömlum textílum, bæði áþreifanlegum og því menningarlega minni sem fellst í munstrum og aðferðum. Ásamt því að sanka að mér til eigin ánægju þá hef ég einnig tekið að mér að gera við og endurvinna eldri textíla og setja upp og leiðbeina með uppsetningu nýrra verka. Í náminu við Textíldeild Myndlista- og Handíðaskóla Íslands var lögð áhersla á bæði eldri tækni sem og nýjar aðferðir og nálgun. Síðar í starfi mínu hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands naut ég þess að sækja námskeið í margvíslegu handverki; t.d. útsaumi, vefnaði, jurtalitun, þjóðbúningasaumi og leðurvinnu. Þessi fjölþætta reynsla í námi og starfi hef ég svo nýtt til fjölbreyttrar textílvinnu og hönnunar.