um mig

Ég hef nýverið lokið sveinsprófi í Húsgagnabólstrun (Tækniskólinn í samstarfi við Skive Tekniske Skole) og er einnig með burtfararpróf í Húsgagnasmíði (Tækniskólinn). Þá er ég Textílhönnuður (Myndlista– og handíðaskóli Íslands, nú LHÍ). Áhugi minn á handverki og handverkshefðum hefur fylgt mér frá blautu barnsbeini. Að loknu 5 ára námi í textílhönnun og myndlist lá leið mín í ýmis stjórnunarstörf hjá Heimilisiðnanarfélagi Íslands, Textílfélaginu og Textílsetrinu Blönduósi auk þess að starfa sem textíl– og prjónahönnuður. Samhliða hefur óbilandi áhugi á útiveru og útivist leitt mig um landið með hópum ferðamanna og oft hefur áhugi á handverki og prjóni tvinnað þessi störf ánægjulega saman. Með bakgrunn í handverki, handverkshefðum og myndlist sameinar það áhuga minn og færni í bólstrun og textílvinnu ýmiskonar.